Áfallajóga 4: endurmenntun

Hefur þú einhverjar spurningar eða tillögur varðandi þetta námskeið? Endilega sendu mér skilaboð. Ég mun svara þér eins fljótt og auðið er. Hafðu samband við okkur.
Nánar um námskeiðið
Áfallajóga 4: endurmenntun er framhaldsnámskeið sem haldið verður 7. nóvember kl. 9–13 og er ætlað þeim sem vilja dýpka skilning sinn á tengslum líkama og áfalla.
Á námskeiðinu verður sérstök áhersla lögð á psoas vöðvann og hlutverk hans í áfallavinnu. Farið verður yfir hvernig þessi djúpi kjarnavöðvi tengist streituviðbrögðum líkamans, öryggiskennd og tilfinningalegri úrvinnslu. Þátttakendur fá innsýn í hvernig hægt er að vinna með psoas á mildan og meðvitaðan hátt til að styðja við jafnvægi í taugakerfinu og auka líkamsvitund.
Námskeiðið sameinar fræðslu og hagnýtar æfingar, með áherslu á örugga nálgun sem hentar áfallamiðaðri líkamsvinnu. Með námskeiðinu fylgja myndbönd með æfingum sem þátttakendur geta nýtt sér til áframhaldandi iðkunar og dýpkunar eftir að námskeiði lýkur.