Karma Jógastúdíó er Yoga Alliance viðurkenndur skóli sem býður upp á 200 tíma jógakennaranám sem er viðurkennt af Yoga Alliance. Einnig býður Karma upp á 300 tíma framhaldsnám í jóga og styttri námskeið sem eru viðurkennd af Yoga Alliance sem endurmenntunarnámskeið fyrir jógakennara.
Guðrún Reynis er stofnandi og eigandi Karma Jógastúdíó og Jógaskólans. Guðrún er Yoga Alliance viðurkenndur jógakennari en hún útskrifaðist með RYT-500 frá Yoga Skyros Academy á Grikklandi eftir að hafa klárað fyrstu 200 tímana hjá Jóga- og blómadropaskóla Kristbjargar. Guðrún hefur einnig lokið 200 tíma Yoga Alliance professionals viðurkenndu námi í Trauma-sensitive yoga and somatics.
Guðrún er viðurkenndur Yoga Trapeze® kennari frá Yoga Teachers College í Barcelona. Að auki er hún með kennsluréttindi í yin yoga, yoga nidra, slökunarjóga, pilates, foam flex og trigger point pilates. Guðrún hefur kennt jóga frá árinu 2013.
Ég er mjög ánægð að hafa skráð mig í þetta nám, ég hef lært margt og þetta hefur allt verið mjög áhugavert og skemmtilegt. Jóga hefur hjálpað mér að tengjast minni andlegu hlið og ég myndi mæla með þessu námi fyrir alla sem hafa áhuga á að læra betur inn á sig sjálfa/n andlega sem líkamlega.
Ég leit á að fara í jógakennaranám sem áskorun og að það væri góð leið til að koma mér út úr þægindarammanum. Í náminu sá ég jógað frá nýrri hlið og einnig lærði ég margt sem ég vissi ekki að væri hluti af jógaheiminum. Kennararnir voru mjög styðjandi, skipulagið var mjög gott og vel haldið utan um okkur. Ég mæli hiklaust með jógakennaranáminu hjá Karma og jógaskólanum.
Tvö hundruð tíma jógakennaranám Karma og Jógaskólans er fjölbreytt, víðtækt og skemmtilegt nám. Ég fór fyrst og fremst í námið fyrir sjálfa mig og var óviss um hvort að ég myndi eða yfirhöfuð hefði að útskrift lokinni sjálfstraustið til þess að bjóða upp á mín eigin jóganámskeið. Nú er ég hins vegar spennt að sjá hvað ég mun gera með mitt nám sem og að seinna dýpka þekkingu mína í jóga með áframhaldandi námi. Guðrún og Edda voru frábærir kennarar. Þær lögðu mikla áherslu á ólíkar þarfir hvers og eins og að kenna okkur að hugsa um jógastöðurnar út frá því. Þær voru einnig mjög áhugasamar um allt það efni sem kennt var sem gerði tímana líflega og skemmtilega.
Rólujóga er æðislegt prógramm, skemmtilega krefjandi og nærandi fyrir líkama og sál. Mig hafði lengi langað til að prófa rólujóga og sé svo sannarlega ekki eftir að hafa prófað. Það að hafa róluna og böndin til að gera æfingarnar hentar mér mjög vel og mér finnst æðislegt að hanga á hvolfi og gera handstöður. Guðrún er frábær kennari.
Ég hef tekið nokkur rólujóganámskeið hjá Guðrúnu og mæli algjörlega með þeim. Fjölbreyttur bakgrunnur hennar og mikil þekking endurspeglast vel í kennslunni þar sem hún blandar saman jóga, barre og styrktaræfingum. Tímarnir eru fjölbreyttir, skemmtilegir og fljótir að líða. Guðrún hefur þann hæfileika að draga mig mátulega langt áfram í hvert sinn og byggja þannig upp hægt og rólega styrk og þrek. Þannig finnst mér ég yfirleitt geta mun meira en ég átti von á í hverjum tíma og komast dýpra í stöður. Svo hefur Guðrún mjög góða nærveru, er hlý og hvetjandi. Mæli svo mikið með þessu.
Ég hef fylgt Guðrúnu Reynis síðan 2013 og finnst hún frábær kennari. Hún hefur góða nærveru, er vel að sér í fræðunum og leiðir tímana af miklu öryggi. Þannig geta bæði byrjendur sem og lengra komnir fengið mikið útúr tímunum þegar hún leiðir iðkendur í gegnum mismunandi erfiðleikastig jóga. Mér finnst tímarnir hjá Guðrúnu æðislegir. Þetta er tími sem ég gef sjálfri mér, burt frá daglegu amstri og þó að tímarnir geti vissulega verið krefjandi þá veita þeir mikla endurheimt þannig þú gengur út endurnærður á líkama og sál. Ég get vel mælt með tímunum hjá Guðrúnu.
Ég hef verið í jógatímum hjá Guðrúnu Reynis í 2 ár. Áður en ég byrjaði að mæta til hennar í jógatíma þá hafði ég ekki mikla reynslu af jóga. Hinsvegar eftir þessi 2 ár þá náði ég að uppgötva leyndardóma jóga bæði líkamlega og andlega og á ég Guðrúnu miklar þakkir fyrir það. Guðrún er dásamlegur jógakennari. Hún er með mjög gott flæði í tímum og maður reynir mikið á sig þannig að maður finnur fyrir auknu þoli og styrk eftir tíma hjá henni. Hún stýrir tímunum ótrúlega vel og æfingarnar eru gerðar á hæfilegum hraða fyrir alla. Hún útskýrir einnig æfingarnar mjög vel þ.e.a.s. hvernig maður á að beita líkamanum í æfingunum. Hún kennir okkur líka mikilvægi öndunar. Guðrún er einn besti jógakennari sem ég hef farið til. Hún hefur líka svo fallega og blíða rödd þannig að það er mjög notalegt að hlusta á hana stýra tímunum.
Ég mæli með jógakennaranáminu hjá Karma Jógaskóla. Guðrún og Edda eru frábærar kennarar. Námið hentar mjög vel fyrir vinnandi fólk. Það er kostur að hafa námið yfir svona langan tíma. Þá gefst góður tími milli lota að velta hlutum fyrir sér og prófa sig áfram. Námsefni og glærur eru framúrskarandi og úr því verður mjög flott jógakennsluhandbók sem maður getur nýtt sér aftur og aftur.
Guðrún Reynis er einstök. Elska námskeiðin hennar enda mjög fróðleg, persónuleg og með fullt af tækjum og tólum sem hægt er að nota í eigin lífi sem og kenna öðrum. Fannst gott að geta tekið þetta í fjarnámi, fá upptökurnar og æfingar til að hlusta á aftur og aftur. Allir ættu að taka þetta fyrir sig enda hafa flestir lent í áföllum og því mikilvægt að læra um áhrif þess á líkamann og úrvinnslu þess. Mæli með þessu fyrir alla.
Ég tók helgarnámskeið hjá Karma Jógastúdíó í Yin jóga á síðasta ári. Námskeiðið var vel skipulagt í alla staði. Kennari námskeiðsins Guðrún var vel undirbúin og skipulögð, þess vegna komst námsefni námskeiðsins vel til skila og einnig annar fróðleikur varðandi Yin jóga. Það skiptir miklu máli að námskeið séu vel undirbúin og skipulögð. Námsefni fylgdi námskeiðinu og var það gagnlegt og fræðandi. Það hefur nýst mér vel við Yin jóga kennslu.
Ég hef verið í Hot Pilates, Hot Body og Hot Yoga hjá mörgum mismunandi þjálfurum, en mér finnst tímarnir hjá Guðrúnu Reynis bera af. Guðrún fer alltaf rólega og vel i hverja stöðu í jóga og heldur stöðunni um stund sem mér finnst skipta svo miklu máli. Guðrún fylgist vel með þátttakendum og leiðréttir stöðu hjá hverjum og einum ef með þarf. Mér líður alltaf vel og er sterkari og liðugri þegar ég stunda jóga hjá Guðrúnu, hún er mín uppáhalds.
Ég lét loksins verða að því að fara í jógakennaranám eftir að langa til þess í 20 ár. Ég skoðaði margar síður og var bent á námið hjá Guðrúnu og Karma. Ég held það þetta sé með betri ákvörðunum sem ég hef tekið og sé ekki eftir neinu. Ég hef lært ótrúlega mikið í náminu og held ég muni geta notað allt sem ég lærði bæði í lífinu og í jógakennslu.
Jógakennaranámið hjá Karma og Jógaskólanum var frábært tækifæri fyrir mig til að þróast sem manneskja og til að bæta mig sem kennari. Mikill lærdómur sem nýtist á öllum lífsþáttum. Guðrún og Edda - takk fyrir skemmtilega samveru og takk fyrir mig.
Mæli svo mikið með þessu jógakennaranámi og ekki bara til þess að læra og kenna heldur líka til að dýpka eigin sjálfsþekkingu og skilning á jóga. Námið er bæði krefjandi og gefandi á sama tíma. Dásamlegir kennarar og ég bara get ekki mælt meira með!
Guðrún hefur sérstaklega góða nærveru, hún er örugg og veit nákvæmlega hvað hún er að gera sem leiðir til þess að námsefnið skilar sér vel og þú sem nemandi nærð góðri tengingu við námið. Gott utanumhald og gott viðmót, takk fyrir mig.
Námskeiðið sem tók þátt í hjá henni Guðrúnu Reynisdóttur jógakennara var mjög fræðandi og góð upplifun. Mér fannst það þétt af efni bæði í formi fyrirlestra og æfinga sem ég gat tekið þátt í og einnig var Guðrún viljug að svara spurningum um hvað eina sem nemendur höfðu hug á að fræðast meira um. Glærurnar voru líka mjög góðar og Guðrún benti líka á mikið af efni til að lesa sig meira til í.
Ég tók Yoga Nidra kennaranámskeið hjá Guðrúnu Reynis hjá Karma sem leiddi námskeiðið einstaklega vel. Námskeiðið var vel framsett og námsefnið vel útlistað. Það stóð samt algjörlega upp úr fyrir mér að fá verklegu æfingarnar saman til að tengja strax við efnið. Frábært námskeið í alla staði. Takk kærlega fyrir mig!
Ég myndi klárlega mæla með þessu námskeiði og tel það nýtast öllum, ekki bara jógakennurum sérstaklega. Mér fannst ég læra margt og fá aukinn skilning gagnvart sjálfri mér og öðrum sem hafa ýmiskonar áfallasögu að baki. Sömuleiðis fannst mér námskeiðið sett upp með svo skýrum og praktískum hætti að það er auðvelt að tileinka sér allt sem maður lærir og æfingarnar líka inn í daglegt líf, bæði persónulega og í starfi.
Ég mæli svo sannarlega með þessu námskeiði hjá Guðrúnu. Efnið, æfingarnar og hugleiðslurnar voru rosalega áhugaverðar og skemmtilegar. Eftir námskeiðið er ég örugg og tilbúin að innleiða áfallamiðaða nálgun í mína eigin kennslu.
Ég fór á þetta námskeið fyrir sjálfan mig. Ég er traumatized manneskja og ber þess merki um allan líkamann í formi spennu, bólgu og óróleika. Ég þurfti að takast á við það beint. Læra um bæði áföll og hvernig þau spila með tilfinningarnar og líkamann. Ég lærði svo mikið um akkúrat allt þetta í þessu námskeiði og svo mun meira en það. Ég lærði skilvirkar og gagnlegar en í senn auðveldar æfingar sem ég finn að eru að hafa bein áhrif á taugakerfið mitt. Á námskeiðinu öðlaðist ég dýpri skilning á því hvað ég og líkami minn erum að ganga í gegnum í kjölfar áfalls. Það er næstum eins og ég hafi fundið áfallið í líkamanum og byrjað að tala við það með möntrum, öndunaræfingum og hreyfingum sem ég lærði í þessu námskeiði. Guðrún er áhugasöm, vitur, mild og hlý í kennslu sinni. Ef þú ert að vinna þig í gegnum áfall, nýtt eða gamalt þá get ég vissulega mælt með að þú skráir þig á næsta námskeið. Efnið mun nýtast þér út ævina.
Ég mæli 100 % með þessu frábæra námskeiði hjá Guðrúnu, þetta er það albesta námskeið sem ég hef farið á og frábær viðbót við mína jógakennslu, mikill fróðleikur ásamt flottum æfingum sem henta öllum.
Áfallajóga er hreint út sagt frábært námskeið, gefandi, fræðandi og eykur lífsgæði allra! Það voru mörg „aha“ augnablik og allt meikar svo mikinn sense. Sómatískar æfingar er eitthvað sem allir ættu að læra. Finnst það vera svo heildræn nálgun á allt, ekki bara fyrir fólk með áföll, heldur heimavinnandi mæður, uppgefna feður, íþróttafólk OG skrifstofufólk. Því sómatískar æfingar auka núvitund og meðvitund, og hjálpa manni að komast inní núið, inn í núvitund, sem er að sjálfsögðu lykillinn af góðu lífi og lífsgæðum.
Frábært námskeið, eitt það áhugaverðasta sem ég hef farið á. Mikið efni, mikill fróðleikur og faglega unnið. Guðrún er reynslumikil og frábær kennari. Dýrmætt að eiga áfram aðgang að þessum fjársjóði. Að geta hlustað aftur á námskeiðið, farið í jógatímana og leiddu hugleiðslurnar. Get af heilum hug mælt með þessu námskeiði. Hjartans þökk fyrir mig.
Áfallajóga námskeiðið er mjög gott námskeið, ljúft að hlusta á Guðrúnu sem kemur efninu vel til skila. Mjög gott að hafa þetta í fjarkennslu fyrir okkur úti á landi. Ég get svo sannarlega mælt með þessu námskeiði.
Ég mæli eindregið með þessu áfallajóga námskeiði fyrir alla, ekki aðeins fyrir jógakennara og fólk með áfallasögu. Stór partur af námskeiðinu getur hentað öllum og kennt þér að þekkja betur inn á sjálfan þig og gefið þér fullt af verkfærum til að takast á við kvíða, erfiði í hinu daglega lífi og róað miðtaugakerfið þitt. Einnig tel ég að námskeiðið gefi manni skilning fyrir ástvinum eða fólki í lífinu okkar sem er með áfallasögu og veitir okkur innsæi til að gefa stuðning fyrir þá sem þurfa. Ég lærði mikið um áföll ásamt góðum æfingum sem ég er byrjuð að nota til að bæta vellíðan mína.
Ég gef námskeiðinu „25 klst nám í áfallajóga“ mín bestu meðmæli og hæstu einkunn. Guðrún Reynisdóttir kennari er einstakur kennari. Fer mjög skipulega á mjög þægilegan hátt í gegnum námsefnið sem að mínu mati er til algjörrar fyrirmyndar. Kennarinn, skipulagið og námsefnið fær 10 í einkunn hjá mér. Ég hef farið á fleiri námskeið hjá Guðrúnu og þetta er ekki það síðasta.
Ég mæli heilshugar með þessu námskeiði. Ótrúlega áhugavert. Sjálf er ég ekki jógakennari, en lærði heilmikið sem ég mun nýta mér út í lífið og einnig í mínu starfi. Guðrún er frábær leiðbeinandi, hún er ljúf, skýr og skipulögð.
Frábært námskeið í alla staði. Efni námskeiðsins er mjög lærdómsríkt og áhugavert, kafað var djúpt í efnið sem gerði það að verkum að maður skildi það vel. Kennarinn var til allra vilja gerður að hjálpa og vera til staðar.