Gefðu þér stund

Í annasömu lífi getur verið dýrmætt að eiga stað þar sem þú getur staldrað við, einbeitt þér að andardrættinum og snúið athyglinni inn á við. Með hugleiðslum og Yoga Nidra færðu stuðning til að hægja á, finna meiri ró og skapa þér reglulegar stundir fyrir hvíld og endurheimt.

Þú þarft ekki að mæta á ákveðnum tíma eða fylgja dagskrá. Þú velur einfaldlega það sem þú þarft á að halda hverju sinni – og hlustar hvenær og hvar sem þér hentar.

Þín stund

2.990 kr.

á mánuði

Fjölbreytt safn hugleiðslna og Yoga Nidra fyrir ró, hvíld og vellíðan – alltaf við höndina.

Gerast áskrifandi

Rólegra kvöld - betri svefn

Góður svefn byrjar oft áður en þú leggur höfuðið á koddann. Í áskriftinni finnur þú hugleiðslur sem hjálpa þér að hægja á, sleppa tökunum á deginum og undirbúa líkama og huga fyrir nóttina. Þar eru líka sérstakar svefnhugleiðslur sem þú getur hlustað á þegar þú ert komin(n) upp í rúm og vilt auðvelda þér að sofna.

Veldu það sem hentar þér hverju sinni, komdu þér vel fyrir og leyfðu röddinni að leiða þig inn í friðsældina. Þú þarft ekkert að gera – bara loka augunum, slaka, hlusta og leyfa svefninum að koma.

Gerast áskrifandi

Hlustaðu og upplifðu

Hugleiðsla mánaðarins

Hlustaðu á hugleiðslu mánaðarins og fáðu smá innsýn í það sem bíður þín í Karma áskriftinni.

Við hverju má búast?

Ró og næring fyrir hugann – þegar þú þarft á því að halda.

Áskriftin gefur þér aðgang að hugleiðslum og Yoga Nidra djúpslökun sem þú getur valið eftir því hvernig þér líður og hvað þú þarft hverju sinni.

Meiri ró og slökun

Gefðu huganum svigrúm til að hægja á og líkamanum tækifæri til að slaka á.

Betri hvíld og svefn

Veldu úr hugleiðslum og Yoga Nidra sem henta sérstaklega þegar þú vilt undirbúa þig fyrir hvíld eða rólegan nætursvefn.

Alltaf aðgengilegt

Engir fastir tímar og engin dagskrá. Veldu það sem hentar þér og hlustaðu hvenær og hvar sem þú vilt.

Um kennarann

Guðrún Reynis

Guðrún Reynisdóttir er stofnandi og eigandi Karma Jógastúdíó. Hún er Yoga Alliance viðurkenndur jógakennari og útskrifaðist með RYT-500 frá Yoga Skyros Academy á Grikklandi, eftir að hafa lokið fyrstu 200 tímum jógakennaranámsins hjá Jóga- og blómadropaskóla Kristbjargar.

Guðrún hefur einnig lokið 200 tíma Yoga Alliance Professionals viðurkenndu námi í Trauma-Sensitive Yoga and Somatics og hefur lokið viðurkenndu kennaranámi í Yoga Nidra, Yin Yoga og slökunarjóga.

Í allri sinni kennslu leggur Guðrún ríka áherslu á áfallamiðaða og nærgætna nálgun þar sem öryggi, val og virðing fyrir mörkum hvers og eins eru höfð að leiðarljósi. Hún vinnur mikið með taugakerfið og hvernig við getum með einföldum verkfærum stutt við ró, jafnvægi og öryggistilfinningu í líkama og huga. Sú nálgun endurspeglast bæði í jógakennslu hennar, Yoga Nidra og leiddum hugleiðslum.

Gerast áskrifandi

Þín stund

2.990 kr.

á mánuði

Fjölbreytt safn hugleiðslna og Yoga Nidra fyrir ró, hvíld og vellíðan – alltaf við höndina.

Gerast áskrifandi

Algengar spurningar

Með áskrift að Karma færðu aðgang að fjölbreyttu safni hugleiðslna og Yoga Nidra á íslensku. Þú getur hlustað eins oft og þú vilt, hvenær og hvar sem þér hentar, og valið efni eftir því hvað þú þarft hverju sinni – hvort sem það er meiri ró, slökun, betri svefn eða einfaldlega stund fyrir þig.