TIL BAKA

Áfallajóga sería hjá Karma næsta vetur

17 maí 2026

Áhugi á áfallamiðuðu jóga hefur aukist gríðarlega undanfarin ár og hjá Karma höfum við séð það skýrt í sívaxandi eftirspurn eftir námskeiðunum okkar. Í mörg misseri hefur verið stútfullt á vinsæla áfallajóganámskeiðið okkar og því er okkur mikil ánægja að kynna enn fjölbreyttara framboð næsta vetur.

Við höfum sérhæft okkur í að miðla áfallamiðuðu jóga þar sem áhersla er lögð á að skapa öryggi, líkamsvitund og dýpri skilning á tengingu líkama og taugakerfis í áfallavinnu. Nú nýlega bættist við námskeiðið: Áfallajóga 2, sem verður einnig kennt sem 4 skipta námskeið líkt og grunnnámskeiðið.

Að auki verður í haust í boði sérstök endurmenntun í áfallafræðum þar sem þátttakendur geta skráð sig á dagsnámskeiðin Áfallajóga 3, 4 og 5.

Áfallajóga 3

Á þessu námskeiði verður farið sérstaklega í krosshreyfingar, samhæfingu og jafnvægisskynið en þessir þættir gegna mikilvægu hlutverki í áfallavinnu og geta stutt við samþættingu taugakerfisins og aukna líkamsmeðvitund.

Áfallajóga 4

Í fjórða hlutanum beinum við sjónum að psoas vöðvanum, sem oft er kallaður „vöðvi sálarinnar“. Við skoðum hvernig streita og áföll geta safnast í líkamanum og hvernig hægt er að vinna með psoas til að stuðla að meiri slökun og öryggistilfinningu.

Áfallajóga 5

Í fimmta hlutanum verður farið í bandvefinn og trigger point vinnu, en þessi nálgun nýtist einstaklega vel í áfallavinnu og getur hjálpað þátttakendum að losa um spennu og auka tengingu við líkamann.

Með öllum námskeiðunum fylgir:

  • ítarlegt námsefni
  • myndbönd með æfingum
  • aðgangur að upptökum eftir tíma

Öll námskeið fara fram í fjarnámi í gegnum Zoom, sem gerir þátttakendum kleift að læra á sínum eigin hraða og nálgast efnið hvar sem er á landinu.

Skráning er hafin og takmarkað sætapláss í boði.