TIL BAKA
Haustið hjá Karma tekur á sig mynd
15 júní 2026

Haustið hjá Karma tekur á sig mynd
Nú er haustdagskrá Karma loksins komin á hreint og skráning hafin. Ég þurfti að færa til nokkur námskeið og endurraða dagskránni aðeins, en nú liggur hún fyrir og ég hlakka mikið til að hitta bæði nýja og gamla nemendur á komandi misseri.
Eins og áður verða öll námskeið kennd á Zoom og upptökur aðgengilegar þátttakendum til að skoða þegar hentar.
Haust 2026
Áfallajóga 3 – Framhaldsnám
5. september
Áfallajóga 1 - Grunnnám
12. september – 14. nóvember
Yin Yoga kennaranám
26. september – 7. nóvember
Áfallajóga 4 – Framhaldsnám
21. nóvember
Vor 2027
Áfallajóga 2 - Framhaldsnám
9. janúar – 13. mars
Yoga Nidra kennaranám
16. janúar – 27. febrúar
Yin Yoga – Framhaldsnám
13. febrúar – 6. mars
Námið hjá Karma byggir á því að skapa öruggt rými til fræðslu, sjálfsskoðunar og vaxtar. Hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin eða halda áfram á þeirri vegferð sem þegar er hafin, þá vona ég að þú finnir námskeið sem hentar þér.
Skráning á öll námskeið fer fram í gegnum heimasíðuna og ég hlakka til að eiga með ykkur enn eina fallega námsönn.