TIL BAKA

Nýtt hjá Karma: upptökur af slökunarjógatímum

24 júlí 2024

nu-er-haegt-ad-kaupa-upptokur-af-5-slokunarjogatimum-thumbnail

Nú er hægt að kaupa upptökur af 5 slökunarjógatímum hjá Karma. 

Til að iðka slökunarjóga heima þarf að eiga 2 jógapúða, 2 jógakubba og nokkur góð teppi. Þeir sem ekki eiga jógapúða geta notað nokkur teppi í staðinn. Hægt er að nota þykkar og stöðugar bækur í stað jógakubba. 

Þessi slökunarjógapakki inniheldur 5 upptökur af slökunartímum: 

Slökunartími 1: 52 mínútur

Slökunartími 2: 45 mínútur

Slökunartími 3: 64 mínútur

Slökunartími 4: 59 mínútur

Slökunartími 5: 23 mínútur

Eftir að kaup hafa gengið í gegn fær kaupandi tölvupóst frá Karma með slóð í myndböndin. Athugið að það getur tekið allt að sólarhring fyrir póstinn að berast.