TIL BAKA

Skapandi hugleiðsluskrif – lærðu að skapa hugleiðslur sem ná til fólks

23 ágúst 2026

Hvernig verður hugmynd að hugleiðslu að handriti – og handrit að leiðslu sem fólk getur raunverulega tengt við?

Skapandi hugleiðsluskrif er þriggja lota námskeið fyrir þau sem vilja læra að skrifa og leiða hugleiðslur af öryggi, fagmennsku og með eigin rödd. Við förum frá grunninum í uppbyggingu hugleiðsluhandrita yfir í myndlíkingar, líkamsskynjun, ólíka markhópa og að lokum hvernig þú þróar þinn eigin stíl sem höfundur og leiðbeinandi.

Námið hefst 31. október og lýkur 12. desember. Allar þrjár loturnar eru teknar upp og því er hægt að horfa á kennsluna síðar.

Lota 1 – Grunnurinn

Grunnur hugleiðsluskrifa – hlutverk leiðbeinanda – uppbygging handrits – tungumálið – öndun

Lota 2 – Dýpt og markhópar

Líkamsskynjun – myndlíkingar – undirmeðvitundin – hugleiðslur fyrir mismunandi markhópa

Lota 3 – Þinn eigin stíll

Þemahugleiðslur – frá handriti yfir í leiðslu – siðferði og ábyrgð – að þróa eigin stíl

Námskeiðinu fylgir vegleg, um 300 blaðsíðna handbók um hugleiðsluskrif ásamt safni hugleiðsluhandrita sem tengjast þeim markhópum sem fjallað er um í náminu. Þar má meðal annars finna almennar hugleiðslur, hugleiðslur fyrir börn og unglinga, fólk undir álagi, svefnhugleiðslur, hugleiðslur fyrir vinnustaði og stjórnendur og fleira.

Markmiðið er að þú standir að námi loknu með bæði þekkinguna og verkfærin til að skrifa þín eigin hugleiðsluhandrit, aðlaga þau að ólíkum hópum og leiða þau á þinn eigin hátt.

Kennari: Guðrún Reynis
Námskeiðsgjald: 69.900 kr.
Námstímabil: 31. október – 12. desember
Kennsla: 3 lotur – allar teknar upp

Skráning er hafin á heimasíðunni og takmarkað pláss er í boði.